Vorferð FFÁS
Þá er komið að skráningu í vorferðina okkar!
Allt starfsfólk á skólasöfnum er velkomið í þessa fræðsluferð og hægt er að skrá hana sem endurmenntun.
Að þessu sinni ætlum við að skoða þrjú skólasöfn sem fæst okkar hafa séð áður. Söfnin í Brekkubæjarskóla og Grunnskólanum í Borgarnesi eru ný og gaman að sjá hvaða áherslur skólarnir hafa lagt við hönnun þeirra og hlutverk þeirra í skólastarfinu. Svo er alltaf gaman að koma í Heiðarskóla sem er sveitaskóli í nýlegri i byggingu í yndislegu umhverfi 
Við fáum líka að heimsækja Safnahúsið í Borgarnesi áður en við borðum kvöldverð saman í Englendingavík.
Greiða þarf 1.500 kr. staðfestingargjald auk þess að þátttakendur greiða sjálfir fyrir kvöldverðinn í Englendingavík.
Lagt verður af stað frá Húsi verslunarinnar kl. 12.00 (mætum aðeins fyrr svo hægt sé að fara strax af stað) og frá Krónuplaninu í Mosfellsbæ kl. 12.20. Áætluð heimkoma við Hús verslunarinnar er kl. 20.00.
Við hlökkum mikið til að fara með ykkur í þessa ferð, þetta er frábær leið fyrir okkur einyrkjana til að kynnast fólki sem vinnur við það sama og við – hristum hópinn okkar saman og fræðumst í leiðinni!
Skráning
