Lög félagsins

Félagið heitir Félag fagfólks á skólasöfnum, skammstafað FFÁS og er félag fagmenntaðs starfsfólks á skólasöfnum. Félagssvæði þess er landið allt. Heimili þess og varnarþing er í Reykjavík.

a. Að efla starf á skólasöfnum og stuðla að viðurkenningu starfsins sem sérhæfðrar starfsgreinar.

b. Að gæta hagsmuna félagsmanna við gerð kjarasamninga í þeim stéttarfélögum sem þar á við.

c. Að efla samheldni, tengsl og stéttarvitund félagsmanna.

d. Að gæta faglegra og félagslegra hagsmuna félagsmanna gagnvart innlendum og erlendum aðilum.

e. Að efla faglegt starf meðal félagsmanna og vinna að því að allir sem starfa á skólasöfnum hafi menntun við hæfi.

f. Að stuðla að endurmenntun félagsmanna.

g. Að efla rannsókna- og fræðistörf sem varða skólasöfn.

h. Að efla samstarf við sambærileg erlend félög.

  • Félagsmenn í Félagi fagfólks á skólasöfnum eru:
  • a. Kennarar sem hafa viðurkennda framhaldsmenntun í bókasafns- og upplýsingafræði.
  • b. Þeir sem hafa viðurkennda menntun í bókasafns- og upplýsingafræði.

Stjórn tekur ákvörðun um innheimtu félagsgjalda.

Stjórn félagsins getur vikið manni úr félaginu vinni hann gegn hagsmunum þess og/eða gerist brotlegur í starfi.

Aðalfundur félagsins skal haldinn í marsmánuði ár hvert. Hann hefur æðsta vald í málefnum félagsins.

 Til hans skal boðað með viku fyrirvara hið skemmsta og er hann þá lögmætur. Afl atkvæða ræður

 úrslitum mála.

Dagskrá aðalfundar skal vera:

  1. Skýrsla stjórnar.
  2. Ársreikningur félagsins.
  3. Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga félagsins.
  4. Lagabreytingar.
  5. Skýrslur nefnda.
  6. Umræður og afgreiðsla mála.
  7. Kosning stjórnar, varastjórnar, fræðslunefndar og kjaranefndar.
  8. Kosning tveggja endurskoðenda.
  9. Önnur mál.

Lögum þessum má aðeins breyta á aðalfundi. Tillögur til lagabreytinga skal senda stjórn minnst

tveimur vikum fyrir aðalfund og skal stjórnin senda þær til félagsmanna með fundarboði.

Til lagabreytinga þarf ¾ atkvæða fundarmanna.

Stjórn félagsins skal skipuð fimm mönnum og tveimur til vara. Formann skal kjósa sérstaklega.

Stjórn félagsins skiptir með sér verkum. Við stjórnarkjör skal tryggt að ekki gangi fleiri en þrír úr stjórn í einu.

Þegar formannsskipti verða er fráfarandi formaður ráðgefandi aðili fyrir stjórn fram til næstu áramóta.

Stjórn félagsins ræður málefnum þess með þeim takmörkunum sem lög þessi setja. Hún tekur ákvarðanir

um starfsemi félagsins og ber ábyrgð á fjárreiðum þess. Hún skuldbindur félagið gagnvart öðrum aðilum

og er undirskrift formanns og gjaldkera nægileg til þess. Stjórn félagsins er heimilt að skipa í nefndir sem

starfa í umboði stjórnar.

Nefndir og fagráð:

Fræðslunefnd skal starfrækt. Hún er skipuð þremur félagsmönnum og starfssvið hennar er að sjá um

 heimasíðu félagsins auk þess að vinna að fræðslu- og endurmenntunarmálum.

Kjaranefnd skal starfrækt. Hún er skipuð þremur félagsmönnum og hlutverk hennar er að taka saman

upplýsingar um kjaramál félagsmanna og upplýsa um hagsmunamál í kjarasamningum.

 Nefndarmenn eru einnig tengiliðir fyrir hönd stjórnar við þau stéttarfélög sem félagsmenn eru aðilar að.

Nefndir þessar starfa í nánu samráði við stjórn félagsins.

Stjórnarfundi skal boða með tryggilegum hætti og með eins dags fyrirvara ef hægt er.

 Stjórnarfundur er ályktunarfær ef þrír stjórnarmenn sækja fund. Afl atkvæða ræður úrslitum á stjórnarfundum.

Við jöfn atkvæði ræður atkvæði formanns úrslitum. Gerðir stjórnar skulu bókfærðar.

Nú kemur fram tillaga um að félaginu skuli slitið og skal hún þá sæta sömu meðferð og tillögur

um lagabreytingar, sbr. 7. grein hér að framan. Eignir félagsins ef einhverjar eru, skulu þá renna  til góðgerðarmála eða líknarstarfsemi.