Um síðuna

Vefsíðan er sett á fót fyrir starfsfólk grunnskólasafna á Íslandi sem vettvangur fyrir samvinnu, faglegu samstarfi og miðlunar á sameiginlegu efni af ýmsum toga til eflingar á faglegu starfi skólasafna.

Valið var í vefteymi innan stjórnar og fór teymið í að vinna þessa vinnu:

Dröfn Vilhjálmsdóttir, skólasafn Seljaskóla

Einar Eysteinsson, skólasafn Vatnsendaskóla

Jónella Sigurjónsdóttir, skólasafn Brekkubæjarskóli

Unnur María Sólmundardóttir, skólasafn Breiðholtsskóla.

Vefsíðuteymið hittist reglulega á fundum varðandi vefsíðuna og vann þess á milli að verkefnum fyrir síðuna.

Vefsíðan skolasafn.is fór formlega í loftið á aðalfundi Félags fagfólks á skólasöfnum þriðjudaginn 12.mars 2024. Opnuninni var fylgt eftir með kynningu á síðunni inn á Facebook hópi FFÁS.

Vefsíða FFÁS þjónustar félagsfólks FFÁS, þar er nú hægt að finna viðburðadagatal, fréttir, mikilvæga tengla ásamt lögum félagsins, upplýsingar um stjórn og fundargerðir aðalfunda félagsins. Hryggjarstykkið í síðunni eru þó verkefnasafn, bókaklúbbar og bókalistar. Eru þetta veigamiklir þættir í starfi á bókasöfnum, fram til þessa hefur þetta allt saman verið inni í lokuðum Facebook hóp sem hefur ekki verið auðvelt að nálgast. Sökum þess hvernig Facebook hópar virka hefur ekki verið hægt að fletta í verkefnasöfnum heldur hefur notandinn þurft að leita sérstaklega að hverju og einu verkefni og prófa sig áfram með leitarorð. Með tilkomu vefsíðunnar er nú hægt að leita á skipulagðan hátt og mun auðveldara að uppgötva efni sem hægt er að nýta sér í starfinu á skólasöfnum en áður hefur verið.

Verkefnið var styrkt af Bókasafnasjóði.

Samið var við listakonuna Sunnevu Snorradóttur um að gera myndir fyrir síðuna. Myndirnar sem Sunneva gerði eru lýsandi fyrir starfsemina á skólasöfnunum og sýna fjölbreyttan nemendahóp.

Ertu með ábendingu um hvað má betur fara á síðunni okkar? 

Láttu okkur þá vita hér!