Upplýsinga- og miðlalæsisvika 12.-16. febrúar

Sérstök fræðsluvika tileinkuð upplýsinga- og miðlalæsi verður haldin í annað sinn á Íslandi vikuna 12.-16. febrúar. Um er að ræða árlegan viðburð þar sem lögð er áhersla á vitundarvakningu um mikilvægi upplýsinga- og miðlalæsis ásamt því að bjóða upp á nýtt fræðsluefni með mismunandi þema milli ára.

Í tilefni upplýsinga- og miðlalæsisvikunnar í ár verður opnuð ný heimasíða Netumferðarskólans, samstarfsverkefni Fjölmiðlanefndar og Persónuverndar sem miðar að því að efla fræðslu um persónuvernd, miðlalæsi og netöryggi barna í stafrænni tilveru. Á heimasíðunni verður að finna fjölbreytta fræðslu í formi myndbanda og texta ásamt verkefnum og stuðningsefni fyrir kennara. Þar að auki hefur Fjölmiðlanefnd verið í samstarfi við Geðheilsumiðstöð barna við gerð nýrra skjátímaviðmiða fyrir börn og ungmenni en viðmiðin hafa nú þegar þegar verið birt á vef Heilsuveru. Hápunktur fræðsluvikunnar verður svo málþing um velferð barna í stafrænum heimi sem haldið verður í Grósku þann 15. febrúar. Nánari upplýsingar um dagskrá málþingsins verða auglýstar bráðlega.

Tengslanet um upplýsinga- og miðlalæsi (TUMI) stendur að vikunni með styrk frá Fjölmiðlanefni. FFÁS á áheyrnarfulltrúa í tengslaneti TUma.