Strumpaklúbburinn

Hér einn skemmtilegasti lestarklúbburinn á ferð og sérlega hentugur fyrir 2.-4. bekk. Nemendur skrá sig á þar til gert Strumpablað sem inniheldur reiti fyrir bækurnar 10 í bókaflokknum. Þegar barn tekur Strumpabók skráir það dagsetninguna sem bókin var tekin og þegar bókinni er skilað er skiladagurinn skráður. Hér gefst gott tækifæri til að spjalla um vikudaga, mánuði og mánaðardaga. Þegar barn hefur lesið allar 10 bækurnar fær það blað og svarar spurningunni: Hvers vegna er gaman að lesa… 

Útbúin eru lesgleraugu Gáfnastrumps og ekki er verra ef textílmenntakennari getur hent í eina strumpahúfu! Tekin er mynd af lestrarstrumpinum og honum gefin mynd af sér

Gögn