Prinsessuklúbburin
Prinsessuklúbburinn skiptist í 3 stig eða tignir, og hverri tign fylgir skráningarhefti. Til eru nokkrar útfærslur á klúbbnum þar sem ýmist þarf að lesa bækur og haka við til að klára hvert stig, eða skrá titla og gefa bókum einkunn. Eftir hverja tign fá nemendur viðurkenningarskjal. Á sumum þátttökugögnum eru aukaverkefni eins kastalar til að lita. Þannig á að teikna sjálfsmynd í Prinsessulestri 1 og skrifa smásögu um hvernig það er að vera prinsessa. Í Prinsessulestri 2 þarf að búa til prinsessuorðasúpu og í Prinsessulestri 3 þarf að skrá heiti fjögurra prinsessa og hjálpa þeim í gegnum völundarhús. Í pakkanum eru einnig miðar til að merkja bækurnar eftir erfiðleikastigi með bronslitum, silfurlitum og gylltum kórónum, prinsessufánaveifur og gögn fyrir safnmöppu.
