Jólabókaklúbbur

Hó, hó, hó, hér er eitthvað fyrir jólalestrarkettina! Í jólabókaklúbbnum geta nemendur í byrjun valið úr nokkrum bókamerkjum sem hvert um sig hefur fjóra auða reiti. Í hvert sinn sem jólabók er lesinn fær barn að stimpla í auðu reitina, líma skemmtilegan límmiða eða jafnvel fallega jólamynd. Þegar bókamerkið er fullt er það merkt og plastað. Þá fá nemendur happdrættismiða til að fylla út og lenda í jólahappdrættispotti sem dreginn er út korter í jólafrí. Um leið og nemandi hefur unnið sér inn happdrættismiða getur hann líka fengið jólasveinanafnið sitt á fallegu bókamerki en þarf fyrst að finna út úr því á meðfylgjandi veggspjaldi.

Gögn: