Hryllingsklúbburinn

Hver vill ekki ganga í Hryllingsbókaklúbb í októbermánuði? Og bara lesa eitthvað spennó allt árið um kring? Í Hryllingsbókaklúbbnum sem þær Aníta Líf og Bylgja Stefnía í Breiðholtsskóla hönnuðu skrá börnin sig til leiks á þar til gert eyðublað, lesa hryllingsbækur og gefa þeim einkunn á hryllingsskalanum 1-3. Þátttakendur fá gatabókamerki til að fylgjast með hversu vel gengur að lesa ósköpin, og viðurkenningarskjal eftir 20, 40 og 60 lesnar bækur. Þessi er alveg hrikalega skemmtilegur og hentar öllum aldri.

Gögn