Heimildaverkefni
Á bókasöfnum er hægt að vinna fjölbreytt og skemmtileg verkefni.
Jólasveinarannsóknir - hópverkefni
Nemendur leita að upplýsingum um jólasveina og fylla í eyður verkefna. Unnið með heimildaskráningar, blaðsíðutöl, höfunda og titla.
Glærukynning: Bókakilir
Hér er farið yfir hugtök eins bókarkjölur, raðtákn, kjalmiði og hvernig við röðum bókum á bókasafni. Nemendur teikna svo bókarkjöl sem raðað er í rétta röð.
Fjársjóðsleitin á bókasafninu
Nemendur fá A4 blað með 15 myndum. Börnin leita að bókum sem tengjast myndunum, krossa í reitina og þjálfast um leið í að rata um safnið. Bæði á íslensku og ensku.
Leit í fræðiritum fyrir migstig
Nemendur gerast spæjarar á bókasafninu og leita að nokkrum fræðibókum. Börnin vinna m.a. atriðaorðaskrár og orðskýringar.
