Haustfræðsla FFÁS í Hraunvallaskóla

Fjölmenni var á haustfræðslu FFÁS sem haldin var á skólasafni Hraunvallaskóla í Hafnarfirði fimmtudaginn 15. október.

Þema fundarins voru myndasögur og mikilvægi myndabóka og teiknimyndasagna. Lars Jóhann, skólastjóri Hraunvallaskóla bauð okkur velkomin. Karítas Guðmundsdóttir fjallaði svo um myndlæsi og hæfileikann til að skilja, túlka og gagnrýna myndir og sjónrænt efni í myndrænum sögum. 

Eftir kynningu Karítasar, sögðu Steinunn úr Setbergsskóla og Helga úr Engidalsskóla frá  ferð þeirra til Suður Kóreu á International Federation of Library Associations and Institutions eða IFLA ráðstefnuna. Hún er stærsta ráðstefnan á sviði bókasafns- og upplýsingafræði í heiminum.

Þökkum við öllum þeim sem komu. Sérstakar þakkir fær Karítas fyrir hlýjar móttökur.