Gerðubergsráðstefnan
Hin árlega Gerðubergsráðstefna, ráðstefna um barna og unglingabókmenntir, verður haldin laugardaginn 28. september klukkan 10:30-13:45.
Þemað í ár er Grín í barnabókum.
Gerðubergsráðstefnan verður haldin í Bókasafni Kópavogs í ár vegna framkvæmda á salnum í Gerðubergi.
Aðgangur er ókeypis og öll velkomin.
Að ráðstefnunni standa eftirfarandi félög og stofnanir; Borgarbókasafnið, Bókasafn Kópavogs, Upplýsing, IBBY á Íslandi, Félag fagfólks á skólasöfnum og Reykjavíkurborg.
