Galdraklúbburinn

Í Galdraklúbbnum þarf að lesa bækur þar sem galdrar, nornir og kyngimagnað fólk kemur með einum eða öðrum hætti við sögu. Galdraáhugafólk fær þátttökublað með lista af lesbókum sem það hakar við að lestri loknum. Með klúbbnum fylgir einni galdrahringur, blað með 9 reitum sem nemendur safna límmiðum í. Ef galdrahringurinn týnist þarf að losa sig við álögin með því að lesa upphátt fyrir sér yngra barn. Í Galdraklúbbnum eru 2 galdrahefti og viðurkenningarskjöl fyrir að klára hvort um sig. Bókaklúbburinn var hannaður af Bryndísi Blöndal og Sigri í 4. bekk Breiðholtsskóla sem er sérstaklega áhugasöm um að Galdraklúbburinn fari sem víðast.

Gögn

Galdrahringur 1

Galdraklúbbur 1

Viðurkenningarskjal 1

Galdrahringur 2

Galdraklúbbur 2

Viðurkenningarskjal 2

Miðar fyrir galdrabækur