Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar 2024

Þann 24. apríl síðastliðinn afhenti Einar Þorsteinsson borgarstjóri Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar 2024 í Höfða við hátíðlega athöfn.

Veitt eru verðlaun í þremur flokkum og hlutu eftirfarandi verðlaunin:

Hildur Knútsdóttir hlýtur verðlaunin í flokki frumsaminna verka

Rán Flygenring hlýtur verðlaunin í flokki myndlýsinga

Ásta Halldóra Ólafsdóttir í flokki þýðinga.

Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar eiga sér lengsta sögu barnabókaverðlauna á landinu og er helsta markmið þeirra að vekja athygli á því sem vel er gert í bókaútgáfu fyrir unga lesendur og hvetja þá til bóklesturs. Verðlaunin eru veitt rithöfundum, myndhöfundum og þýðendum barnabóka fyrir metnaðarfullar ritsmíðar og þýðingar fyrir börn. Verðlaunin eru 350.000 krónur í hverjum flokki.

Í dómnefnd voru Sunna Dís Jensdóttir (formaður), Anna C. Leplar og Arngrímur Vídalín.

Umsagnir dómnefndar er hægt að finna hér.

Verðlaunahafar að lokinni athöfn í Höfða. Neðri röð f.v.: Ásta Halldóra Ólafsdóttir, Hildur Knútsdóttir og Rán Flygenring. Í efri röð f.v. Einar Þorsteinsson, borgarstjóri, Sunna D. Jensdóttir, formaður dómnefndar og Anna C. Leplar dómnefndarfulltrúi.