Drekaklúbburinn
Drekaklúbburinn er einn af elstu lestrarklúbbum skólasafnanna úr smiðju hins eina sanna Vignis Ljósálfs. Í Drekaklúbbnum eru margvíslegar bækur lesnar þar sem drekar koma með einum eða öðrum hætti við sögu. Drekaklúbbnum er skipt í Drekalærling, Drekafræðing, 3 stig af Drekameistara eftir þyngd bóka og loks Hinn mikla drekameistara en þá er bara ein bók lesin: Drekafræði. Áður en lestur hefst skrifa nemendur undir samning og eftir hann taka börnin krossapróf, semja drekasögu og teikna mynd af sér sem fer upp á vegg. Lesbækurnar sjálfar eru merktar með miða sem sýnir þyngdargráðurnar.
