Aðalfundur FFÁS 2025

Aðalfundur Félags fagfólks á skólasöfnum var haldinn fimmtudaginn 27.mars í Hofsstaðaskóla, Garðabæ. Aðalfundurinn var vel sóttur.

Dagskrá fundarins var í samræmi við lög félagsins. Jónella Sigurjónsdóttir, formaður FFÁS, las skýrslu stjórnar. Heiða Rúnarsdóttir, gjaldkeri, fór yfir ársreikningana. Engar lagabreytingar urðu en stjórn leggur til að farið verði í endurskoðun á lögum félagsins og kallar eftir fólki til að koma að þeirri vinnu. Samþykkti fundurinn að boðað yrði til aukaaðalfundar í haust til að fara í lagabreytingar. 

Stjórn félagsins gaf öll kost á sér til áframhaldandi setu. Stjórn er þó ekki fullmönnuð, annað árið í röð.

Eftir fundinn var boðið upp á veitingar og Kristín Hildur Thorarensen sagði frá starfsemi safnsins í Hofsstaðaskóla.

Tvö fræðsluerindi voru að loknum aðalfundinum. Það fyrra var frá Guðbjörgu R. Þórisdóttur, læsisráðgjafa hjá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, en í erindi sínu fjallaði hún um lestrarmenningu út frá sjónarhorni læsisfræðings. Seinna erindið var frá Ingibjörgu Ösp Óttarsdóttur, verkefnastjóra barna- og unglingastarfs hjá Borgarbókasafninu. Kynnti hún sumarlestur almennings bókasafnanna sem unnin er í samvinnu við MMS. Einnig sagði Ingibjörg Ösp frá Sögum, samtökum um barnamenningu og þeirra starfi.