Trölla og töfralestur

Þetta er lestrarklúbbur með ævintýrablæ. Hér á að lesa bækur um ævintýri, tröll eða töfra. Þátttakendur fá afhent ævintýrakort af Galdraskógi þegar þeir leggja af stað. Þeir safna álfasteinum fyrir lestur sem þeir raða á leið sinni í gegnum galdraskóg  (1 álfasteinn fyrir bók með 1-99 bls.- 2 álfasteina fyrir bók með 100-199 bls. o.s.frv.). Titill bóka er skráður aftan á ævintýrakortið. Lesandi segir frá sögum sem hann les til að fá afhenta álfasteina. Þegar lesandi er hálfnaður á ferð sinni um galdraskóg (reit 10) fær hann að velja sér bókamerki. Á leiðarenda fer lesandinn með galdravísu og fær að opna galdrakistuna. Þar fær hann að velja viðurkenningarskjal og einhvern annan glaðning.

Gögn