Vorferð 2024 - Ferðasaga

Fimmtudaginn 23. maí var lagt af stað í árlega fræðsluferð félagsins. Fyrsta stopp var í
Brekkubæjarskóla á Akranesi þar sem boðið var upp á veitingar. Jónella bauð hópinn
velkominn og sagði frá starfsemi skólasafnsins undangenginn vetur. Í Brekkubæjarskóla er
rík og rótgróin lestrarmenning og mikið um að vera á skólasafninu. Jónella sagði m.a. frá
bókaspurningakeppni 4.-7. bekkjar sem fram fer á haustin, jólasögustund á safninu þegar
lesið er upp úr nýútkomnum bókum í desember og Bókamessu Brekkubæjarskóla í janúar
þegar allir nemendur skólans kynna uppáhalds bók fyrir bekkjarfélögum.

Frá Akranesi var haldið upp í Hvalfjarðarsveit þar sem Heiðarskóli var heimsóttur. Heiðarskóli
er um 120 barna sveitaskóli. Sigríður Lára, skólastjóri, sagði frá skólanum og starfsemi
skólasafnsins. Skólabyggingin er nýleg og aðstaða skólasafnsins rúmgóð og vel búin.
Notalegur sófi vísar að glugga með stórkostlegu útsýni upp í Skarðsheiðina. Skólasafnið er
ekki opið allan daginn en vel sótt á opnunartíma og áhersla lögð á að bjóða alltaf upp á nýjar
og spennandi bækur. Á leiðinni út í rútu gekk hópurinn hring í kringum skólann enda veðrið
gott og umhverfi Heiðarskóla ljómandi fallegt.

Næsta stopp var í Grunnskólanum í Borgarnesi þar sem Ásta Björk tók á móti hópnum og
bauð upp á kaffi og meðlæti. Nýlega var byggt við skólann og var skólasafninu valinn frábær
staður í nýbyggingunni með útsýni sem jafnvel sló skólasafni Heiðarskóla við. Safnið er
rúmgott, bjart og vel skipulagt. Í vor var Ásta Björk að prófa sig áfram með að raða
safnkostinum eftir efnisflokkum frekar en stafrófsröð eftir höfundum. Hún leggur mikið upp úr
samræðum og samráði við nemendur sem hafa áhrif á stefnumótun safnsins. Ásta Björk
kynnti ýmsa skemmtilega þætti í safnastarfinu, m.a. hádegisspjall með unglingum og
fjölbreytta bókaklúbba.

Ásta Björk tók svo hluta hópsins með sér í Safnahús Borgarfjarðar. Þar er héraðsbókasafn,
héraðsskjalasafn, listasafn og náttúrugripasafn sem var gaman að skoða.
Lokaáfangastaðurinn var Englendingavík í Borgarnesi þar sem kvöldverðurinn beið.
Þetta var vel heppnuð, fróðleg og mjög skemmtileg ferð og greinilegt að það er mikil gróska í
skólasafnastarfinu í þessum skólum á Vesturlandi.

Jónella Sigurjónsdóttir

Unnur María Sólmundardóttir tók myndirnar