Breytingar á Íslensku barnabókaverðlaununum

Stjórn Verðlaunasjóðs íslenskra barnabóka hefur ákveðið að breyta Íslensku barnabókaverðlaununum. Héðan í frá verður eingöngu óskað eftir óútgefnum handritum að myndríkum bókum; allt frá myndabókum fyrir yngstu lesendurna að myndasögum fyrir unglinga og öllu þar á milli. Verðlaunin hljóta um leið nýtt nafn, Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin. Verðlaunafé verður jafnframt hækkað úr 1.000.000 krónum í 1.500.000 krónur.

Íslensku barnabókaverðlaunin voru stofnuð 1985 í tilefni af sjötugsafmæli rithöfundarins Ármanns Kr. Einarssonar. Að baki þeim standa fjölskylda Ármanns, Barnavinafélagið Sumargjöf og Forlagið. Frá upphafi hefur markmiðið verið að styðja við íslenska barnabókaútgáfu og auðvelda nýjum höfundum að koma sér á framfæri.

Nýtt heiti verðlaunanna, Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin, er sótt til samnefndrar myndabókar sem Ármann Kr. Einarsson og Einar Hákonarson listmálari gerðu í sameiningu. Útgáfa bókarinnar árið 1972 markaði þáttaskil í íslenskri barnabókaútgáfu. Sólfaxi kom út í stóru broti, var prentuð í lit og hver vatnslitamynd Einars þakti heila opnu. Höfundarnir unnu sameiginlega að bókinni allt frá upphafi og var markmið þeirra að listgrein hvors um sig fengi að njóta sín sem best.

Nánar má lesa um breytinguna í frétt RÚV.