Höfundaratleikur
Hér er skemmtilegur höfundaratleikur. Nemendur kasta tening og leita svo að samsvarandi spjöldum. Á þeim eru höfundar ásamt myndum af bókum sem þeir hafa skrifað. Þegar börnin finna rétta spjaldið segja þau safnakennara hvaða höfundur er á því spjaldi og nefna eina bók sem hann hefur skrifað.
Bókmenntaratleikurinn er hentugur fyrir miðstig og hentar vel úti á skólalóð á vordögum.
