Lestrarsprettir

Lestraráskorun Morðcastsins

Lestraráskorun Morðcastsins er vinsælt hlaðvarp fyrir eldri nemendur og fullorðna sem hefur verið með lestraráskoranir undanfarin ár.

Lestu þjóðsögur

Nemendur lesa þjóðsögur og ævintýri og safna myndum af tröllafjölskyldu. Spretturinn samanstendur af skráningarstrimli og tröllamyndum.

Skráningarblað fyrir þjóðsögu- og ævintýralestur prentað báðum megin á A4 blað, skorið í tvennt og brotið saman.

Fylgstu með lestrinum

Nemendur fá risa bókamerki til að fylgjast með lestrinum í mánuð. Markmiðið er að lesa 20 mín á dag í mánuð. Á merkinu eru 30 leitir til að rita fyrir hvern dag.

Uglulestur

Uglulesturinn felst í því að nemendur kasta tening til að ákveða hversu margar blaðsíður eða mínútur er lesið í hvert sinn. Í stað þess að skrá tölustafina teikna nemendur teningana í reitina.

PacMan lestur

Hér má fara ýmsar leiðir, t.d. að láta reitina tákna hvern dag sem lesið er eða þau skipti þegar kennari les fyrir bekkinn. Einnig má skrá lesnar mínútur í hringina.

Lestrartetris

Í bókahillunni eru 15 bækur. Þegar nemandi hefur lesið bók er hún sett í hilluna með því að rita titil hennar á bókarkjöl á skráningarblaðinu. Á sama hátt er hægt að búa til pappírsbókahillu upp á vegg kennslustofunnar með stórum bókakjölum sem fylgja.

Lesbjöllur

Lestrarátakið samanstendur af 30 bjöllum og þegar nemandi hefur lesið í ákveðið langan tíma má hann lita yfir bjöllu sem nemur lestrartímanum. Ef lesið er lengur en 30 mínútur má lita fleiri en 1 bjöllu. Lesbjöllurnar má nota sem átak í heimalestri og/eða í yndislestri á skólatíma.

Fótboltalestur

Börnin velja fjóra fótboltamenn eða -konur og skrá nöfn og númer þeirra í fótboltatreyjur. Þau lita treyjurnar í fjórum litum, lesa jafnmargar blaðsíður og treyjunúmerin segja til um og  bolta í sama lit.

Bangsalestur

Bangsalesturinn er 16 bóka lestrarátak þar sem finna má jafnmörg form og táknmyndir til að leggja inn meðan á átakinu stendur. Ógrynni er til af bangsabókum og bangsasögum, og margir frægir bangsar hafa sett svip sinn á reynsluheim grunnskólabarna. Má þar nefna Paddington, Bangsímon og Róbert bangsa sem dæmi.