Vilja færa stjórn bókasafna undir skólastjórnendur
Í Fjarðarbyggð hafa almennings- og skólabókasöfn verið samrekin í húsnæði grunnskólanna á hverjum stað. Bæjaryfirvöld í Fjarðarbyggð hafa áhuga á að færa stjórn allra bókasafna í sveitarfélaginu undir skólastjórnendur. Þetta er hluti af heildarendurskipulagningu menningarmála í svietarfélaginu. Hver og ein safnastofnun verður þannig lögð niður.
Nokkur samtök tengd bókasöfnum hafa sent bæjaryfirvöldum bréf til að mótmæla fyrirhuguðum breytingum. Samtök forstöðumanna almenningsbókasafna telja fyrirkomulagið grafa undan faglegu starfi safnanna auk þess sem bókasöfn falli undir Bókasafnalög 2012/nr. 150. Þar kemur m.a. fram að forstöðumaður bókasafns skuli, ef þess er kostur, hafa lokið prófi í bókasafns- og upplýsingafræði. Samtökin telja það ótækt að ætlast til þess að skólastjórnendur hafi slíka menntun. Mótmælabréf hafa einnig borist frá Upplýsingu, félagi bókasafns- og upplýsingafræðinga, og Austfirskri upplýsingu, félagi starfsmanna bókasafna og annarra stofnana á Austurlandi sem vinna að upplýsingaþjónustu.
