Það er engin lognmolla í kringum Stúf karlinn og nú er hann kominn á kreik með skemmtilegan jólaratleik. Tilvalið er að setja hann upp fyrir 4.og 5. bekk, eða sem uppskeruhátíð fyrir þá sem eru að vinna markvisst með Ljósaseríuna yfir skólaárið.
Uppskrift að góðum degi:
Finnið hentugan dag á aðventunni til að fara í skemmtilega ratleikinn hans Stúfs.
Bjóðið árgangi til leiks með boðskorti í frímerktu umslagi.
Hengið ratleikinn upp úti á skólalóð eða á skógi vöxnu svæði í nágrenninu.
Gefið örnunum klukkutíma til að finna og svara eins mörgum þrautum og þau geta.
Gleðjið rjóða, káta og mögulega smá kalda krakka með heitu kakói og piparkökum í heimastofu að ratleik loknum.
Svo er bara að telja stigin, finna sigurvegarana og afhenda viðurkenningarskjölin.
