Disneyklúbburinn

Hér eru Disneybækurnar í aðalhlutverki. Börnin skrá sig á þar til gert eyðublað sem geymd eru í möppu, lesa Disneybók og leysa verkefnahefti við. Í hvert skipti sem fullunnu verkefnahefti er skilað inn fá nemendur happdrættismiða sem er merktur og settur í happdrættisbox. Reglulega er heppinn nemandi dreginn út og fær eitthvað skemmtilegt lestrartengt að launum. Hægt er að vinna sér inn minni lestrartengdar gjafir eins og gatabókamerki og Disneyfána á blýantinn.

Gögn