Drekaklúbburinn

Drekaklúbburinn er einn af elstu lestrarklúbbum skólasafnanna úr smiðju hins eina sanna Vignis Ljósálfs. Í Drekaklúbbnum eru margvíslegar bækur lesnar þar sem drekar koma með einum eða öðrum hætti við sögu. Drekaklúbbnum er skipt í Drekalærling, Drekafræðing, 3 stig af Drekameistara eftir þyngd bóka og loks Hinn mikla drekameistara en þá er bara ein bók lesin: Drekafræði. Áður en lestur hefst skrifa nemendur undir samning og eftir hann taka börnin krossapróf, semja drekasögu og teikna mynd af sér sem fer upp á vegg.  Lesbækurnar sjálfar eru merktar með miða sem sýnir þyngdargráðurnar.

Gögn

Drekasamningur

Skjöl fyrir safnmöppu

Miðar fyrir drekabækur

Drekalærlingur

Drekafræðingur

Drekameistari 1. gráða

Drekameistari 2. gráða

Drekameistari 3. gráða

Hinn mikli drekameistari

Drekaprófið

Sjálfsmynd á vegg