Vorferð FFÁS 2025 - ferðasaga

Félagar FFÁS héldu í sína árlegu vorferð þann 15. maí sl. Heilmikil dagskrá var fyrirhuguð og dagurinn vel nýttur.

Fyrst var haldið í Þorlákshöfn þar sem Þrúður Sigurðardóttir tók á móti okkur ásamt skólastjórnendum sem sögðu okkur frá skólanum og starfsemi vetrarins. Í haust var komið á símabanni í skólanum sem átti eftir að hafa mikil og góð áhrif á skólabraginn. Meðal annars sóttu unglingarnir meira en áður inn á skólasafnið í frímínútum, slökuðu á í sófum og áttu jákvæð samskipti yfir spilum, bókum og fleiru sem Þrúður hefur boðið upp á. Skólastjórnendur voru líka afar ánægðir með störf Þrúðar en eftir að hún hóf störf hefur áhugi á lestri aukist í Skólapúlsinum og árangur unglinga í Lesferli tekið stökk upp á við.

Þrúður sagði okkur síðan frá safnastarfinu. Hún hefur nýtt sér facebook hóp félagsins til að fá hugmyndir að verkefnum og útfært þær síðan eftir eigin höfði. Hún býður t.d. öllum nemendum skólans upp á að vera með í bókaklúbbum sem byrja á ákveðnum tíma og lifa í u.þ.b. 2 mánuði. Þá er haldin uppskeruhátíð fyrir þá nemendur sem náðu að klára einn eða fleiri klúbba. Skólastjórinn mætir á hátiðina og börnin fá viðurkenningarskjal og lítil verðlaun. Þátttaka í klúbbastarfinu er mjög góð og margir unglingar taka virkan þátt.

Eftir að hafa þegið veitingar í Þorlákshöfn héldum við á Eyrarbakka þar sem Lýður Pálsson, safnstjóri, tók á móti okkur og stiklaði á stóru í merkilegri sögu Hússins á Eyrarbakka. Við skoðuðum Húsið og Assistentahúsið sem er áfast Húsinu.

Þá lá leiðin í Stekkjaskóla á Selfossi þar sem Lilja Írena H. Guðnadóttir tók á móti hópnum og sýndi okkur þennan glænýja og fallega skóla. Hún sagði okkur frá áherslum sínum í starfi og hvaða sýn hún hafði fyrir skólasafnið. Skólasafnið er búið að fá framtíðarhúsnæði á góðum stað í skólanum. Það verður stórt, um 270 m2, bjart og fallegt. Þar er gert ráð fyrir hópavinnuaðstöðu ásamt aðstöðu til kennslu. Enn er verið að hanna safnið og sýndi Lilja Írena okkur síðustu hugmyndir að hönnun. Hún fékk mörg góð ráð enda með þrautreyndan rýnihóp í heimsókn.

Síðasta stoppið var síðan á veitingastaðnum Hver sem er á hótel Örk í Hveragerði. Þar fengum við ljúffenga máltíð og gátum slakað vel á. Lokastuðið var síðan í rútunni á leiðinni heim þar sem boðið var upp á Júró-bingó.

Þetta var fróðlegur og mjög skemmtilegur dagur. Sunnlendingar tóku vel á móti okkur og við þökkum kærlega fyrir frábærar móttökur.