Ljósaseríuklúbburinn

Í Ljósaseríuklúbbnum er samnefndur bókaflokkur lesinn og myndum af bókarkápum safnað í þátttökublað. Nemendur halda utan um bókhaldið sitt og fá reglulega lítil lestrarverðlaun. Undirbúningur felst helst í því að prenta út þátttökugögnin og klippa niður miða með bókarkápunum (sem gott er að geyma í litlum rennilásapokum). Í Ljósaseríuklúbbnum er hægt að fá lítil lestrarverðlaun á 5 bóka fresti, og eftir lestur 25 bóka fá öll börn viðurkenningarskjal. Sé bókaklúbburinn lagður markvisst fyrir í einhverjum árgangi, t.d. 4. bekk, má halda allsherjar lestrarpartý með því að setja upp jólaratleikinn hans Stúfs í desember, eða jafnvel hugsa út fyrir kassann og vera með Jól í júní ratleik á skólalóðinni.

Gögn

Þátttökuhefti

Límmiðar fyrir þátttökuhefti