Bókaklúbbur Kidda klaufa

Ekki þarf að kynna Kidda klaufa fyrir neinum. En vissir þú að til er Kidda klaufa klúbbur? Ungum áhugamönnum um bókaflokkinn þeim Birti Elouan og Birgi Ingi í 6. bekk Breiðholtsskóla fannst vanta eitthvað skemmtilegt um Kidda klaufa og settu nokkrar hugmyndir á blað. Nú geta öll áhugasöm börn tekið þátt í skemmtilegum klúbbi sem gengur út á það skrifa dagbókafærslur, lesa bækurnar og skrifa skemmtilegar tilvitnanir úr hverri þeirra. Þeir sem klára 16 bækur fá viðurkenningarskjal.

Gögn