Fræðslustund FFÁS

Fræðslustund að hausti verður mánudaginn 10. nóvember!
Ef þú getur mögulega mætt ættirðu ekki að láta þetta fram hjá þér fara 😊
Það er nefnilega tilvalið að:
 
❤ Skella sér á Barnabókamessuna á Laugardalsvelli og gera kjarakaup á bókum!
❤ Koma svo í yndislega safnið hjá Vigni og Ágústu í Laugarnesskóla og fá að skoða ævintýraheiminn sem þar er!
❤ Hittast, fá kaffi og kruðerí og hlusta svo á tvær frábærar kynningar um skemmtileg lestrarhvetjandi verkefni!