Dröfn verðlaunuð á degi íslenskrar tungu
Félag fagfólks á skólasöfnum óskar Dröfn Vilhjálmsdóttur, bókasafns- og upplýsingafræðingi og umsjónarmanns Bókasafns Seljaskóla, innilega til hamingju með verðlaun Jónasar Hallgrímssonar. Tók hún við verðlaununum frá Loga Einarssyni, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra við hátíðlega athöfn í Eddu húsi íslenskunnar á Degi íslenskrar tungu.
Verðlaunin hlaut hún fyrir óeigingjart starf sitt við að auka áhuga barna á íslensku menningarumhverfi og stuðla að auknum lestri þeirra á íslensku. Nánar má lesa um rökstuðning ráðgjafarnefndarinnar á vefsíðu Stjórnarráðs Íslands.
Við athöfnina hélt Dröfn þakkarræðu og með góðfúslegu leyfi hennar birtist hún hér:
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, Logi Einarsson, og aðrir gestir.
Það er mér ákaflega mikill heiður að taka við verðlaunum Jónasar Hallgrímssonar. Þessi viðurkenning snertir þó ekki aðeins mig sem einstakling heldur finnst mér þau tilheyra miklu stærri heild: skólasamfélaginu, skólabókasöfnum, barnabókahöfundum, myndhöfundum, barnabókaútgáfum og ekki síst börnunum sjálfum. En fyrst og fremst finn ég til mikillar gleði yfir því að þau mikilvægu málefni sem ég brenn fyrir hljóti þessa athygli.
Við móttöku virtra verðlauna Jónasar Hallgrímssonar velti ég því fyrir mér hvernig ég eigi heima á lista merks fólks, mjög oft listafólks, sem unnið hefur svo áberandi með íslenska tungu á eftirtektarverðan og vandaðan hátt og hlotið þessi verðlaun á undan mér. Nú þegar öll spjót beinast að íslenskunni þá held ég að þáttur minn, sem og okkar allra sem störfum innan skólakerfisins, sé að skapa undirstöðu fyrir áframhaldandi líf íslenskunnar. Að miðla bókum til barna, hlúa að forvitninni og kveikja með þeim lestrarlöngun sem fylgir þeim út í lífið. Þannig hef ég, ásamt öðrum skólabókasafnsfræðingum, ef til vill unnið íslenskri tungu örlítið gagn þó mér finnist mjög óraunverulegt að vera komin á sama lista og til dæmis Vigdís Finnbogadóttir og Guðrún Helgadóttir.
Ég lít því mögulega á mig sem einhvers konar brú í þessu öllu saman. Ég held að einn hluti af því að brúa bilið á milli barna og bóka, og þar með íslenskunnar, sé að gera skólasafnið að spennandi og aðlaðandi stað. Á skólasöfnunum er einstök aðstaða til að skapa eitthvað ævintýralegt, búa til ákveðinn griðastað og frelsi. Þar þurfa börnin ekki að sitja á stól við borð og fara eftir strangri stundaskrá heldur eru þar komin til að opna hugann og upplifa töfra. Skólasafnið er til þess fallið að búa til undraveröld og ég lít á það sem hlutverk mitt. Ég vil að börnunum líði eins og að þau séu að stíga fyrsta skrefið inn í sögu eða bók um leið og þau stíga inn á skólasafnið. Það eru forréttindi að geta skapað þennan ævintýraheim.
Ég horfi svo á að þessi verðlaun séu ákveðin viðurkenning fyrir öll skólasöfn landsins. Þar fer fram mikilvægt og metnaðarfullt starf. Einmitt í morgun sá ég myndir frá skólabókasafni Breiðholtsskóla þar sem nemendur í 7. bekk gistu í tjöldum á safninu um helgina við maraþonlestur í tilefni af degi íslenskrar tungu. Starfið á skólabókasöfnum það fer þó oft hljótt, meðal annars vegna þess að hvorki grunnskólalög né sveitarfélög tryggja börnum aðgang að virku og mönnuðu skólasafni. Skortur er á skýrri umgjörð og sameiginlegum markmiðum og því verða skólasöfn stundum jaðarsett. Þau eru gjarnan meðal þeirra fyrstu sem finna fyrir sparnaði í skólakerfinu, þau þurfa að færa sig fram á ganga þegar húsnæði þrengir að og mörg hver fá ekki nægt fjármagn til bókakaupa. Samt eru skólasöfn ein af helstu forsendum fyrir því að börnum um allt land sé tryggt jafn aðgengi að bókum.
Markmið mitt frá því ég hóf störf á skólabókasafni hefur verið að fá börn til að lesa, það segir sig sjálft. Frá fyrsta degi stóð ég hins vegar frammi því að ég var ekki með nógu gott bókaúrval til að viðhalda áhuga nemenda á lestri, stundum ekki einu sinni nóg til að kveikja áhuga þeirra yfir höfuð. Það er hins vegar ekki vegna þess að ég hafi ekki fengið nægt fé úthlutað til bókainnkaupa heldur er bókaframboðið of fábrotið.
Því hvernig fáum við börn til að lesa? Það er bara ein leið – með barnabókum! Með fjölbreyttum, aðgengilegum og lifandi barnabókum sem höfða til barnanna og áhugasviðs þeirra.
Hér á Íslandi koma út rúmlega 200 barna- og unglingabækur á ári, þar af er ríflega helmingur þeirra sem hentar börnum á grunnskólaaldri. Hins vegar eru einungis um það bil 10 nýjar bækur gefnar út fyrir unglinga á ári. Hversu áhugasöm um lestur væruð þið ef þetta væri bókaúrvalið ykkar? Kannski eruð þið forfallnir aðdáendur glæpasagna en í ár kæmi ekki ein einasta glæpasaga út á íslensku og þið þyrftuð að bíða fram að næsta jólabókaflóði með krosslagða fingur, nú eða bara lesa glæpasögur á ensku á meðan þið bíðið! Til samanburðar koma út um 1200 barna- og unglingabækur árlega í Noregi, eitt þúsund fleiri bækur en hér á landi.
Áhugi barna á lestri hefur síður en svo dvínað með árunum en hins vegar hefur hann breyst í takti við umhverfið. Í dag lifa börn í mjög sjónrænum heimi sem gerir það að verkum að þykkar bækur með tyrfnum texta og án mynda eru fráhrindandi og þeim finnst erfitt að takast á við lestur slíkra bóka. Börn og unglingar eru því farin að gera auknar kröfur um að bækurnar séu meira myndlýstar og að leturgerðin sé betri. Að sama skapi hefur heimurinn breyst hratt og börn vilja sjá eigin veruleika speglast í bókum. Þau þurfa nýjar sögur sem gerast í samtímanum. Þegar ég sem barn las bækur eftir Enid Blyton þá klóraði ég mér í kollinum yfir ævintýrabörnunum sem fóru í lautarferð í framandi sveitum með brauðbúðing og nautatungu í nesti. Sömuleiðis finnst unglingunum okkar jafn fráleitt að lesa um söguhetjur sem hanga á Hallærisplaninu og þurfa að hringja úr tíkallasíma! Með því að sagnaheimurinn haldist lifandi, fjölbreyttur og í takti við nútímann styrkjum við íslenskuna og aukum líkur á að börn tengi strax við efnið og upplifi lestur sem spennandi og aðlaðandi valkost.
Góðu fréttirnar eru þær að frábæru barnabókahöfundarnir okkar eru tilbúnir að takast á við þessa áskorun! Hæfileikaríku myndhöfundarnir okkar eru tilbúnir! Öflugu barnabókaútgáfurnar okkar eru tilbúnar! Vandamálið felst hins vegar í því að barnabókaútgáfan er markaðsvædd. Barnabækur eru nauðsynleg tæki til lesturs og mega alls ekki lúta duttlungum markaðarins því þar hafa börn enga rödd. Bókaútgáfur standa sig frábærlega og í raun mun betur en til er hægt að ætlast af þeim í svo fámennu landi með örtungumál. Margar hverjar gefa oftsinnis út barnabækur með tapi. En við getum ekki reitt okkur á að barnabókaútgáfa sé rekin áfram af ástríðu einni saman. Daglega þarf ég að neita nemendum mínum um bækur sem þau langar að lesa en eru hreinlega ekki til:
„Áttu þriðju bókina í þessum bókaflokki?”
„Nei því miður, það var hætt að þýða þennan bókaflokk í miðju kafi.”
„Áttu fleiri bækur um Dodda?”
„Nei, því miður, þær seldust ekki nógu vel þannig að höfundarnir hættu við að skrifa fleiri bækur um Dodda.”
„Áttu fleiri bækur eftir þennan höfund?”
„Nei því miður, hún skrifaði bara þessa einu bók en fór svo að starfa við annað.”
„Áttu næstu bók í þessum bókaflokki?”
„Nei því miður, næsta verður ekki þýdd fyrr en eftir eitt ár.”
Það er ekki óalgengt að ég standi kvíðin fyrir framan 10 ára nemanda sem er spenntur að hefja lestur á nýjum bókaflokki. Ég get nefnilega reiknað út að með þeim hraða sem bókaflokkurinn er þýddur á, ein bók á ári, þá mun síðasta bókin koma út þegar hann verður löngu kominn í menntaskóla. Á einhverjum tímapunkti mun ég því þurfa að tilkynna honum að hann geti ekki lesið fleiri bækur í bókaflokknum sem hann er nýbúinn að heillast af, einfaldlega vegna þess að fleiri bækur í flokknum eru ekki fáanlegar á íslensku þó allar séu löngu komnar út á frummálinu.
Við sem samfélag þurfum að láta til okkar taka með miklum þunga og styðja við barnabókaútgáfu svo um munar. Við erum með ákveðna styrki en þeir duga mögulega til að halda barnabókaútgáfu í sama farinu, ekki til þess að auka úrval barna- og unglingabóka svo um muni. Við megum ekki láta það gerast að hæfileikaríkir íslenskir barnabóka- og myndhöfundar hætti að skapa og hverfi til annarra starfa vegna þess að þeir geta ekki lifað á list sinni en samtímis kvörtum við yfir því að börn og unglingar lesi ekki nóg.
Í mínum huga er lausnin sú að fara norsku leiðina. Norðmenn meta það sem svo að þeir séu með örtungumál sem þurfi að vernda. Þar er starfrækt kúltúrráð á vegum ríkisins sem kaupir 2000 eintök af hverri barna- og unglingabók á norsku og þessum eintökum er svo dreift til bókasafna, skóla og leikskóla. Þannig er útgáfa barnabóka tryggð, það eru ekki markaðsöfl sem stjórna heldur bókaþörf barnanna. Að auki bætir kúltúrráðið við þá greiðslu sem rithöfundar fá frá forlögum sínum fyrir seld eintök til þess að styðja við starf barnabókahöfunda í landinu. Þetta vil ég sjá hér á Íslandi. Að við setjum upp sambærilegt kerfi sem tryggir stöðuga útgáfu, eflir starf barnabókahöfunda og myndhöfunda og tryggir um leið börnum jafnt aðgengi að nýjum bókum um land allt.
Ég vil færa dómnefnd og ráðherra einlægar þakkir fyrir heiðurinn sem mér er sýndur.
Ég vil þakka bókasafnsfólki og kennurum fyrir eljuna og sköpunargleðina.
Ég vil þakka rithöfundum, myndhöfundum og útgefendum fyrir að semja og gefa út barnabækur.
Síðast en ekki síst þakka ég börnunum sjálfum fyrir að sýna mér daglega hvernig opna á hugann fyrir ævintýrum.
Hjartans þakkir!
