Bókaverðlaun barnanna
Þann 12. febrúar var opnað fyrir kosningu í Bókaverðlaunum barnanna. Börn geta kosið um skemmtilegustu, áhugaverðustu eða bestu bækurnar til 22. mars. Það er misjafnt eftir skólasöfnum hvernig fyrirkomulag kosninganna er. Það er þó tilvalið að nýta þær, og plakatið sem fylgir með, sem áhugavekjandi verkefni á skólasafninu. Tilkynnt verður um 10 efstu bækurnar þann 14. apríl en sigurvegarar kosninganna verða kynntir á Sögum, verðlaunahátíð barnanna í vor.
