Bókaormaklúbburinn samanstendur af Skemmtilegu smábarnabókunum, sem eru 70 talsins, og hugsaður fyrir allra yngstu lestrarormana. Nemendur fá þátttökuskjal sem inniheldur búklangan orm á miðjuopnu og í hvert sinn sem börnin klára bók skrá þau númerið sem stendur á bókarkápunni í einn af hringjum hans. Á sama tíma fá þau einnig fallegan stimpil eða límmiða á þar til gert safnsvæði á baksíðunni. Í kjölfarið fá börnin einnig stærri hringlaga mynd af bókarkápunni sem þau taka með í stofuna sína. Þau klippa myndina út og búa til risalangan bekkjarorm sem hengdur er upp í heimastofunni. Gott er að undirbúa lestrarátakið með því að prenta eitt sett af hringjum með bókakápum í lit, plasta og gera úr þeim bókaorm þar sem svarthvítu bókakápumiðarnir eru geymdir. Í upphafi er gott að eiga bekkjarsett af hverri bókakápu og geyma miðana í rennilásapokum (70 pokar, einn fyrir hverja bókarkápu) þar sem börnin geta afgreitt sig sjálf.

Gögn