Annasamt haust framundan

Mikið úrval ráðstefna og funda fyrir félagsfólk FFÁS er á næstunni sem áhugavert er að fylgjast með!

Mýrin Barnabókmenntahátíð verður haldin í Reykjavík 16.-18. október. Dagskráin mun birtast á www.myrin.is, þegar nær dregur. Frá upphafi hefur verið lögð áhersla á að hátíðin væri með alþjóðlegu sniði og  er erlendum höfundum og fræðimönnum boðið.

Landsfundur Upplýsingar verður á Selfossi, 16.-17. október. Þema fundarins í ár eru Heimsmarkmiðin – hlutverk bókasafna og upplýsingastofnana. Skráning og dagskrá fundarins er hér www.upplysing.is 

SÍUNG, Samtök íslenskra barna- og unglingabókahöfunda, stendur fyrir ráðstefnu fyrir lykilfólk í barnamenningu þann 13. nóvember. Ráðstefnan fer fram í Golfskálanum Leyni, Akranesi. Nánari upplýsingar munu birtast þegar nær dregur á Facebook síðu þeirra.

Auk þess verður haust fundur FFÁS haldinn í tengslum við Barnabókamessu FÍBUT.

Sjáumst sem flest.