Aðalfundur FFÁS 2024

Þann 12. mars síðastliðinn var aðalfundur Félags fagfólks á skólasöfnum haldinn í hátíðarsal Breiðholtsskóla. Til fundarins mættu 32 félagsmenn. Formaður flutti skýrslu stjórnar og gjaldkeri fór yfir reikninga félagsins. Þau tímamót urðu að Halla Svavarsdóttir og Margrét Björnsdóttir ákváðu að ganga úr stjórn eftir sjö ára samfellda stjórnarsetu. Einnig ákvað Unnur María Sólmundsdóttir að ganga úr stjórn eftir tveggja ára setu í stjórn. Okkur tókst því miður ekki að fullmanna stjórnina að þessu sinni, en í stjórn voru kjörnar tvær öflugar konur, þær Heiða Rúnarsdóttir og Kristín Hildur Thorarensen.

Að aðalfundi loknum fengu þær stjórnarkonur, sem gengu úr stjórn, þakklætisvott fyrir sitt verðmæta og óeigingjarna framlag til félagsins.

Heimasíðan okkar, skolasafn.is, var opnuð við mikinn fögnuð enda hefur fagfólk á skólasöfnum lengi beðið eftir síðunni. Fundargestir lýstu yfir ánægju sinni með einfalda og aðgengilega síðu og greinilegt að hún mun koma félagsmönnum að góðu gagni.

Í kaffihléinu fengu fundargestir afhent sérmerkt bókamerki með slóð heimasíðunnar okkar. Það var gestgjafinn, Unnur María Sólmundsdóttir, sem hannaði bókamerkin og útbjó þau.

Eftir kaffihlé voru tveir áhugaverðir fyrirlestrar á dagskrá sem báðir beindu sjónum sínum að stöðu barna og ungmenna í hinu netvædda og snjalltækjavædda samfélagi sem við búum í. Arndís Þórarinsdóttir kynnti Mömmuskipti, bók sem kom út fyrir síðustu jól. Í þessari fyndnu og spennandi bók segir frá stúlku sem elst upp í kastjósi internetsins án þess að hafa kosið sér það hlutskipti. Á eftir Arndísi steig Eyrún Eva Haraldsdóttir á svið. Hún starfar hjá SAFT og er sérfræðingur í miðlanotkun barna og unglinga. Erindi Eyrúnar hét „Það er auðveldast að leita að þessu á TikTok,“ raunveruleiki nútímabarna í heimi upplýsingaóreiðu og falsfrétta. Þetta var afar fræðandi og áhugavert erindi sem snerti á mörgum þáttum, t.d. hvernig börn og unglingar leita sér upplýsinga, hvernig þau meta upplýsingarnar og hvernig þau nota netið.

Þetta var því bæði skemmtilegur og fræðandi dagspartur sem félagsmenn nutu saman í Breiðholtsskóla.